þriðjudagur, apríl 19, 2005

HI EVERYBODY!!!

This is my webpage in English. I'll write some news of me and just whatever comes up to my mind here on this page as often as I can.

But how are you all??? I'm fine but I miss you all a lot. How is life in Cambridge? And the weather? Please send me mails or wite in the guestbook or write comment on this page.

The weather here has been very strange since I came here for 1 month ago. It has been snowing a lot, raining, sunshining and the temperature has been going from -5 to 12 degrees. It´s not good. I hope we´ll have the summer here soon.

I have so many things to say but now I'm so tired so I write more tomorrow.

Good night :)

laugardagur, janúar 22, 2005

NÝTT BLOGG!!!

Jæja þá er ég loksins búin að fá mér nýtt blogg, er ekki alveg nógu sátt við þetta blogspot dæmi...

Nýja bloggið er:

http://www.blog.central.is/oddnyanna





sunnudagur, janúar 02, 2005

Jól, veislur, bikarar, áramót, 2005, kveðjupartý

Ætli ég byrji nú ekki að óska öllum gleðilegra jóla og gleðilegs nýs árs. Takk fyrir allar gamlar og góðar stundir á síðastliðnum árum. Vona að árið 2005 verði ekkert síðra en öll hin :)

Ég verð nú líka að afsaka mig í blogginu, er ekki nógu dugleg við þetta. Það breytist nú vonandi í lok mánaðarins þegar ég verð komin til Englands...

En þar sem ég hef ekki bloggað ansi lengi þá ælta ég að koma með smá yfirlit hvað ég hef verið að gera síðustu daga....

Aðfangadagur: Byrjaði á þessu vanalega að keyra út pakkana, svo var það bara undirbúningur fyrir kvöldið. Fór í kirkju með systrum mínum og Bjartmari og hans fjölskydu. Heima beið svo þessi dýrindismatur, hreindýrakjöt með öllu tilheyrandi og svo í desert Tobleroneís með Marssósu...ummmm :) Svo var ráðist í að opna pakkana og það var ekkert smáræði, enda vorum þetta pakkar til 9 manns. Ég var ekkert smá ánægð með allt sem ég fékk, segi bara takk kærlega fyrir mig :)

Jóladagur: Það var sko sofið út og svo fórum við Bjartmar tvö jólaboð, fyst til minnar fjölsyldu sem var haldið hjá bróður pabba og svo til hans fjölskyldu á Selfossi.

Annar í Jólum: Hann var nú bara svipaður og jóladagur, sofið út og farið í tvö boð, fyrst til minnar fjölsyldu, sem var haldið heima hjá mér og svo til pabba hans.

27.des: Var frekar rólegur. Fór að þjálfa um morguninn, fór svo út að borða með stóru systur minni á Friday's og svo heim til hennar aðspila um kvöldið, svaka gaman :)

28.des: Vinna frá 9-16 og svo fór ég beint upp í Fífu. Þar voru stelpurnar mínar að fara að keppa á jólamóti Kópavogs. B-liðið endaði í 3.sæti og A-liðið gerði sig lítið fyrir og vann mótið. Glæsilegt hjá stelpunum :) Eftir mótið um miðnætti, kíkti ég til Óla þar sem nokkrir Hamró krakkar voru saman komnir, það var ágætt, fyrir utan hvað ég var alveg dauðuppgefin eftir daginn, enda stoppaði ég mjög stutt.

29.des: Vinna frá kl.8-17. Um kvöldið bauð ég svo nokkrum Verslóskvísum+1 MR gellu í spilakvöld heima, þeim Eddu Láru ofurgellu, Kristrúnu megagellu, Hófí ofurskvísu, Katrínu megababe, Kristínu Björk megaskvísu og svo henni Kristínu Helgu skutlu sem bailaði á okkur!! Spiluðum Trivial og spjölluðum langt fram eftir :)

30.des: Fór uppí Egilshöll um morguninn, þar voru stelpunar mínar að fara að keppa á jólamóti KRR. Þær stóðu sig alveg frábærlega, B-liðið endaði í 2.sæti í riðlinum, og enduðu í3-4.sæti og A-liðið vann alla sína leiki og enduðu í 1.sæti :) Þetta var besta jólagjöfin sem ég fékk. Sigur í 2 mótum á 3 dögum :) Þær eiga sko sannarlega hrós skilið þessar elskur :) Tók nokkrar myndir, set þæt inn við tækifæri, Begga þú mátt fara að passa þig, hehehe :) Kvöldið var svo bara rólegt, fór nú mest í að ákveða hvar við ætluðum að vera á gamlárs. Niðurstaðan var sú að við ætluðum í Hólminn.

Gamlársdagur: Þegar við vöknuðum og litum út um gluggan hættum við við að fara í Hólminn. Veðrið var ekki alveg það besta. Ég fór þá heim og sótti Láru systir og við fórum niðrí valsheimili að fylgjst með kjöri á íþróttamanni Vals 2004. Það var hún Berglind í handboltanum semvar kjörin, mér finnst nú að hún Laufey Ólafs hefði átt að fá þetta.
Um kvöldið kíktum við svo í smá stund til ömmu, þar sem öll mömmu fjölskylda var. Fórum svo í mat til pabba Bjartmars. Fengum þennan dýrindis kalkún :) Eftir matinn fórum við heim til mín að horfa á skaupið (sem okkur fannst by the ekki gott, vorum ekki mörg um það, held bara að nánast öllum örðum hafi fundist það gott). Vorum svo hjá mér á miðnætti. Síðan fórum við í partý til Halla vini Bjartmars, það var fínt :)

1.jan: Þá var sko sofið út, ætla ekki einu sinni að segja hvenær við vökunuðum!! Um kvöldið var Kristún með þetta svaka kveðjupartý, þar sem i-podinn minn, drykkjuleikir og dansari héldu uppi mesta stuðinu. Um 1 leitið hélt liðið í bæinn. Við byrjuðum á Prikinu. svo Sólon, þaðan á Nasa á Stuðmannaball, sem var snilld. Enduðum svo á Ara í Ögra. Á leiðinni heim var svo auðvitað fengið sér Devitos. Þetta var frábært kvöld í alla staði, takk Kristún fyrir æðislegt partý :)

Jæja nú er ég ekki að nenna þessu lengur svo ég segi bara bæ í bili







miðvikudagur, desember 22, 2004

Vinna, útskriftarveisla og bíó

Ég ætla nú bara að byrja á því að óska henni Elínu innilega til hamingju með útskirftina :) Einnig óska ég þeim vinum mínum sem kláruðu prófin í dag til hamingju!!!

Síðustu dagar hafa verið ansi busy hjá mér en samt alveg frábærir.... á föstudaginn fór ég í jólasklippingu og strípur og haldiði ekki bara að mín sé komin með TOPP....er bara nokkuð sátt, þetta er ágæt tilbreyting :)
Föstudagskvöldið var bara rólegt og fínt...ég horfði að sjálfsögðu á idol, má sko ekki missa af þætti...líst bara nokkuð vel á þennan 10 manna hóp....það vantar samt einn svona Jón Sigurðsson í hópinn, hann var sko mitt idol í fyrra....en nóg um það....

Á laugardaginn vann ég í Brilliant frá 13-19. Fór svo eftir vinnu á jólahlaðborð niðrí Valsheimili. Það var svaka stuð, skemmtiatriði mfl.kvenna sló alveg í gegn...;) Svo kom hún Bergný mín og skutlaði mér í afmæli til Eddu, Gerðar og Hörpu. Það var fínt, stoppaði samt ekki lengi þar. Eftir það lá leiðin á Hverfis og þar var sko stuð....þar voru flest allir Laugarvatns krakkarnir og stlepurnar í Val ofl.

Kíkti svo aðeins með Bjartmari á Glaumbar og Ara í Ögra á leiðinni heim....þetta var bara eitt skemmtilegasta djamm hjá mér í langan tíma :)

Sunnudagurinn var frekar rólegur, fór að vinna kl.13 og átti að vera til 21 en fékk að fara kl.17....sem var bara frábært. Fórum svo í mat til Pabba Bjartmars um kvöldið.

Í gær var það svo bara vinna í Regnbogalandi og svo þjálfa. Við Bjartmar fórum síðan í Hreyfingu. vorum að kaupa 1 mán. kort....það veitir sko ekki af að taka á um jólin og sérstaklega eftir þau!!!
Kíktum svo á Laugarveginn og keyptum smá jólagjafir.

Já ætla nú ekki að gleyma aðalatriðinu....við erum búin að fá íbúðina, fengum hana á lau. :) Hún er rosa fín. Æðislegt að prufa að búa annars staðar en heima hjá mömmu og pabba, og það með kærastanum, gæti ekki verið betra :)

Ég veit að þetta er hundleiðinleg færsla svo ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili....

Jólakveðja
-OAK-



föstudagur, desember 17, 2004

7 dagar til jóla :)

Já þetta styttist...ég er orðin svaka spennt :) Trúi því varla að aðfangadagur sé eftir eina viku og ég sem á eftir að gera svo mikið!!!

Hér kemur smá brot af því sem ég á eftir að gera á einni viku:

-Vinna alla daga í Brilliant, Regnbogalandi og þjálfa
-DJAMMA
-Fara í stúdentsveislu hjá Elínu
-Fara á jólahlaðborð og í tvítugsafmæli hjá Eddu, Hörpu og Gerði
-Kaupa nánast allar jólagjafirnar
-Flytja uppí Grafarholt
-Passa Ylfu
-Fara til læknis
-Svo er alveg ómissandi að labba niður Laugarveginn og kíkja á kaffihús á Þorláksmessu

Bless í bili, er farin að þjálfa...



sunnudagur, desember 12, 2004

Íbúð í Grafarholti :)

Já haldiði ekki bara að ég og Bjartmar séum að fara að búa saman um jólin í 1 mánuð :) Vinur Bjartmars á þessa fínu íbúð í Grafarhotli og hann ætlar að vera svo elskulegur og lána okkur hana frá og með næstu helgi fram í miðjan janúar.....hlakka ekkert smá til :)
Þetta verða örugglega án efa ein af mínum bestu jólum, hvað er betra en að vera með ein með kærstanum í fínni íbúð með útsýni yfir Reykjavík og engan pabba til að nöldra í sér!!!

Reyndar er eitt vandamál, ég kann ekki að elda!!! Það er engin hótlel mamma þegar maður er farin að búa!! En það er ekki seinna vænna en að læra að elda núna, þarf að bjarga mér ein í Englandi eftir áramót í 2 mánuði og ekki ætla ég að lifa á McDonalds einu saman og enda eins og kallinn í Super size me!!!
Ef þið lumið á einhverjum góðum uppskriftum eru þær vel þegnar!!

Annars er lítið af frétta af mér, nema bara vinna og aftur vinna.... Er í fjórum vinnum, í frístundaheimilinu í Foldaskóla, í Brilliant, þjálfa í Val og er með fatlaða stelpu í liðveislu!!

Helgin var bara róleg, allavega ekkert djamm, skrapp reyndar á vatnið á föstudaginn, það var mjög fínt eins og vanalega þegar ég kem þangað :) Er nú farin að þekkja ansi vel til þarna, búin að vera fastagestur þar síðastliðið eitt og hálft ár!! og mun væntanlega búa þarna næstu 3 árin :) Það kemur annars allt í ljós í vor!

Jæja ætla að fara að lúlla....

Bið að heilsa ykkur í bili :)




mánudagur, desember 06, 2004

18 dagar til jóla...

Jæja það styttist óðum í jólin....ég verð bara að segja að ég hlakka bara frekar mikið til :) Reyndar verð ég að vinna eins og brjálæðingur.... er að vinna alla daga fram að jólum og alla daga milli jóla og nýjárs!! En þá verður bara gaman hjá mér í lok des þegar ég fæ útborgað :)

Hér kemur smá yfirlit yfir það sem ég er búin að bralla síðustu daga....

.....Skellti mér á Laugarvatn í síðustu viku að heimsækja hann Bjartmar minn....Á föstudaginn kíkti ég til Elínar að horfa á idolið og svo kíktum við Elín, Vala, Dísa, Katrín og Kata á djammið....Fórum á Kofann, Prikið, Hverfis, Sólon og Gaukinn. Það var bara ansi gaman hjá okkur, en það voru ekki margir í bænum, allir nottla í prófum.........Á laugardaginn fór ég að þjóna á Naustinu frá kl.fimm til hálf eitt. Það var bara mjög fínt, reydnar alveg brjálað að gera. Ég sem hef aldrei þjónað áður stóð mig bara nokkuð vel held ég, fékk allavega nokkur hrós frá kúnnum, var ýkt sátt með það ;) ..... Sunnudagurinn byrjaði snemma hjá mér. Það var leikur hjá 3.flokki við HK kl.9.30. Sossa komst ekki svo ég var bara ein með þær og þær stóðu sig sko ekkert smá vel, unnu 9-0, vá hvað ég var ánægð með þær :) .... Eftir leikinn fór ég að passa Ylfu. Við byrjuðum á því að fara í sund, svo kíktum við niðrí bæ að horfa á þegar kveikt var á jólatrénu á Asturvelli, enduðum svo að fá okkur kakó á Kaffi París.....Endaði daginn í gær á að leigja Butterfly effect á dvd, hún var bara ansi góð, ekki svona týpísk
mynd, mæli með henni.

Jæja ætla að drífa mig í bíó....
eitt að lokum til allra vina minna sem eru í prófum..... GANGI YKKUR VEL....ég hugsa til ykkar :)


This page is powered by Blogger. Isn't yours?